Kvöldfréttir

Vararíkissaksóknari, Ísrael ræðst á Líbanon, hótelframkvæmdir, Færeyjar, forseti og laxveiði

Dómsmálaráðherra hefur til athugunar tillögu ríkissaksóknara um leysa vararíkissaksóknara tímabundið frá störfum vegna ummæla hans. Ráðuneytið hyggst ekki tjá sig um málið - um starfsmannamál ræða.

Ísraelsher varpaði sprengjum á Beirút á sjötta tímanum. Herinn segir árásinni hafi verið beint foringja Hezbollah samtakanna.

Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir fjárfestingu í hóteluppbyggingu vera til margra áratuga. Hóteleigandi segist finna fyrir niðursveiflunni í atvinnugreininni.

Forseti Norðurlandaráðs segir yfirlýsing lögmanns Færeyja í gær varðandi fulla aðild ráðinu hafi komið á óvart, en afstaðan hafi í sjálfu sér legið fyrir. Vonast er til þess málið skýrist á Norðurlandaráðsþingi í haust.

Almenningi er boðið á Austurvöll á fimmtudaginn þegar Halla Tómasdóttir tekur við embætti forseta Íslands. Athöfnin verður sýnd á risaskjám.

Útlit er fyrir lengra veiðitímabil en vanalega í Blöndu og Jökulsá á Dal. Það er vegna óvenjulítils vatns í lónum Landsvirkjunar.

Sundkappinn Anton Sveinn McKee er bjartsýnn á komast í úrslitin í 200 metra bringusundi á Ólympíuleikunum í París. Hann syndir í undanúrslitum í kvöld.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Markús Hjaltason

Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir

Frumflutt

30. júlí 2024

Aðgengilegt til

30. júlí 2025
Kvöldfréttir

Kvöldfréttir

Kvöldfréttir útvarps

Þættir

,