Kvöldfréttir

Hælisumsóknir Sýrlendinga frystar, rafmagn flöktir í Vík í Mýrdal og formaður Flokks fólksins um gang viðræðna

Stjórnvöld í nokkrum ríkjum, meðal annars í Danmörku, Svíþjóð og Noregi, afgreiða ekki hælisumsóknir frá Sýrlendingum fyrr en ástandið þar skýrist. Útlendingastofnun hefur ekki ákveðið hvað gert verður hér.

Ákæra hefur verið gefin út á hendur karlmanni sem grunaður er um hafa banað dóttur sinni fimmtánda september.

Stjórnarmyndunarviðræður héldu áfram í dag. Formaður Flokks fólksins segir flokkarnir þrír þurfi mætast á miðri leið við myndun ríkisstjórnar og gefa eftir í einhverjum málum.

Rafmagn komst á í Vík síðdegis en sló út aftur út laust fyrir fréttir. Keyrt verður á varaafli þar til búið er gera við streng í Skógá.

Gosi er lokið við Sundhnúksgíga og almannavarnastig hefur verið lækkað af hættustigi í óvissustig.

Það ræðst í kvöld hvort þýska fyrirtækið Heidelberg fær reisa mölunarverksmiðju í Þorlákshöfn og vinna efni af sjávarbotni úti fyrir Landeyjum. Íbúakosningu lauk í dag.

Frumflutt

9. des. 2024

Aðgengilegt til

9. des. 2025
Kvöldfréttir

Kvöldfréttir

Kvöldfréttir útvarps

Þættir

,