Kvöldfréttir

Seiðastrok, rafmagnsleysi, Orban og Trump, ferðaþjónusta og kynferðisbrot

Við eftirlit MAST í fiskeldisstöð Samherja í Öxarfirði kom í ljós þar vantaði yfir 5000 fiska. Stofnunin telur þeir fiskar hafi runnið til sjávar sem seiði, þegar flæddi upp úr eldiskeri í maí.

Rafmagn verður tekið af Grindavík í kvöld. Í tilkynningu HS veitna eru tímasetningar ekki nákvæmar en gert ráð fyrir 6 til átta klukkustundum án rafmagns.

Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands á fund með Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, loknum leiðtogafundi NATO í kvöld.

Ferðaþjónustubóndi á Suðausturlandi lækkaði verð á gistingu um allt fimmtung vegna minni eftirspurnar. Hún segir uppsafnaða ferðaþörf eftir Covid ekki lengur til staðar.

Íslenskir gerendur í kynferðisbrotum eru gjarnan álitnir saklausir uns sekt er sönnuð. Annað gildir um útlendinga ef marka samfélagsumræðuna segir stjórnarformaður Hagsmunasamtaka brotaþola.

Þrjár vikur eru í Halla Tómasdóttir verði sett í embætti forseta Íslands. Undirbúningur er í fullum gangi.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Markús Hjaltason

Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir

Frumflutt

11. júlí 2024

Aðgengilegt til

11. júlí 2025
Kvöldfréttir

Kvöldfréttir

Kvöldfréttir útvarps

Þættir

,