Kvöldfréttir

Bílslys, bændur og Kjarnafæði, Hvassahraun, Grindavík og NATO

Vegurinn yfir Holtavörðuheiði hefur verið lokaður frá því á fimmta tímanum vegna áreksturs. Óvíst er hvenær vegurinn verður opnaður á ný. Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar voru sendar á vettvang.

Á fimmta hundrað bændur íhuga hvort þeir selji hluti sína í Kjarnafæði-Norðlenska. Stjórnarformaður segir flesta bíða svara við ákveðnum lykilspurningum, áður en ákvörðun verði tekin.

Jörðin Hvassahraun er til sölu, en eigendur hennar búast ekki lengur við ríkið kaupi hana undir flugvöll.

Stjórnvöld skoða tillögur Grindavíkurnefndarinnar um viðgerðir í bænum vegna jarðhræringa. Formaður nefndarinnar segir fyrst verði gert við götur.

Fjörutíu og þrír voru dæmdir í lífstíðarfangelsi í fjöldaréttarhöldum í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í dag fyrir tengsl við hryðjuverkasamtök. Mannréttindasamtök segja réttarhöldin tilraun stjórnvalda til þöggunar.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra flutti í gær ávarp í Washington á viðburði Antonys Blinken utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Viðburðurinn fór fram í tengslum við stefnu NATO sem nefnist Konur, friður og öryggi og er ætlað auka hlut kvenna í friðarviðræðum bandalagsins.

Og í kvöld ræðst hvort það verða Hollendingar eða Englendingar sem mæta Spánverjum í úrslitaleik EM karla í fótbolta.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Markús Hjaltason

Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir

Frumflutt

10. júlí 2024

Aðgengilegt til

10. júlí 2025
Kvöldfréttir

Kvöldfréttir

Kvöldfréttir útvarps

Þættir

,