Árið er

Árið er 2015 - seinni hluti

Björk opnar inn í hjarta, Hljómsveitin Vök fer í hringi, Reykjavíkurdætur vekja athygli og umtal og Lára Rúnars syngur ævintýralega tilraunakennda melankólíska popptónlist. Emmsjé Gauti og strákarnir eru á allra vörum, Sturla Atlas hamrar járnið meðan það er heitt, Gísli Pálmi dregur ekkert undan en úlfarnir hvísla Barða í Bang Gang. Vintage Caravan treður upp á yfir eitthundrað tónleikum utan landssteinanna, Dikta gerir plötu í Þýskalandi, Vax framleiðir eitt lag á viku og Destrier með Agent Fresco er rokkplata ársins. Eivör sendir frá sér plötutvennu á færeysku og ensku, Árstíðapiltar selja íslenskar lopapeysur, Helgi Björns kaupir sér miða aðra leið en Ljótu hálfvitarnir og Fjallabræður sömu hugmyndina.

Í þáttunum, Árið er.... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum, eru helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu.

Meðal viðmælenda í seinni hluta umfjöllunar um íslenska tónlistarárið 2015 eru Björk Guðmundsdóttir. Gauti Þeyr Másson, Margrét Rán Magnúsdóttir, Gunnar Már Jakobsson, Eivör Pálsdóttir, Logi Pedro Stefánsson, Unnstyeinn Manúel Stefánsson, Haukur Heiðar Hauksson, Skúli Gestsson, Jón Bjarni Pétursson, Arnór Dan Arnarson, Tóti Guðnason, Gísli Pálmi Sigurðsson, Barði Jóhannsson, Helgi Björnsson, Guðmundur Óskar Guðmundsson, Lára Rúnarsdóttir, Halldór Gunnar Pálsson, Magnús Þór Sigmundsson, Snæbjörn Ragnarsson, Baldur Ragnarsson, Þorgeir Tryggvason, Þuríður Blær Jóhannesdóttir, Salka Sól Eyfeld, Steinunn Jónsdóttir og Halldór Waren.

Umsjón: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.

Frumflutt

21. sept. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Árið er

Árið er

Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum. Í þáttunum er eitt ár í íslenskri dægurlagtónlistarasögu tekið fyrir í einu frá árinu 1980 til 2020. Umsjónarmenn: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.

Þættir

,