Árið er

Árið er 2011 - annar hluti

Það kemst enginn með tærnar þar sem Mugison hefur hælana, Sólstafir rokka í stinningskulda niðri í fjöru og Björk fer áfram ótroðnar slóðir í tónlistarsköpun. Lay Low syngur á íslensku á sinni þriðju plötu, Daníel Ágúst fer í bingó, Nýdönsk er í nánd og GusGus flokkurinn gefur út sína áttundu hljóðversplötu. Samstarfi Megasar og Senuþjófanna fylgir hugboð um vandræði, Magnús Þór og Páll Rósinkranz taka höndum saman og Hera Hjartardóttir skýtur upp kollinum. Ingó Veðurguð fær Fjallabræður til liðs við sig, Felix Bergsson syngur lög við ljóð Páls Ólafssonar, Bogomil Font & Hákarlarnir skoða dýrafræðin og Quarashi snýr aftur. Hljómsveitin Ég skoðar ímynd fíflsins, Valdimar Guðmundsson hittir Memfismafíunna í okkar eigin Osló og Hljómskálinn hefur göngu sína í sjónvarpi allra landsmanna.

Í þáttunum, Árið er.... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum, eru helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu.

Meðal viðmælenda í öðrum hluta umfjöllunar um íslenska tónlistarárið 2011 eru Örn Elías Guðmundsson, Guðmundur Kristinn Jónsson, Birgir Þórarinsson, Daníel Ágúst Haraldsson, Bragi Valdimar Skúlason, Snorri Helgason, Nanna Bryndís Hilmarsdóttir, Ragnar Þórhallsson, Valdimar Guðmundsson, Ásgeir Aðalsteinsson, Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, Björk Guðmundsdóttir, Ingólfur Þórarinsson, Aðalbjörn Tryggvason, Guðmundur Óli Pálmason og Felix Bergsson.

Umsjón: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.

Lagalisti:

Mugison - Haglél

Mugison - Stingum af

Mugison - Þjóðarsálin

Mugison - Góðan dag

Mugison - Kletturinn [Live @ Harpa]

Mugison - Áfall

Megas & Senuþjófarnir - Ekkert er andstyggilegra

Megas & Senuþjófarnir og Ágústa Eva - Lengi skal manninn reyna

Megas & Senuþjófarnir - Kúkur í flagi

Hera Hjartardóttir - Litre Of Me

Hera Hjartardóttir - Rattle My Bones

Gus Gus - Within You

Gus Gus - Over

Gus Gus - Deep Inside

Gus Gus - Arabian Horse

Bogomil Font & Hákarlarnir - Dýrafræðin

Páll Rósinkranz & Magnús Þór - Einu sinni

Quarashi - Beat’em

Mammút - Bakkus

FM Belfast & Jóhann Helgason - Feel So Fine

Of Monsters And Men + Snorri Helgason - Öll þessi ást

Valdimar & Magnús Eiríksson - Apinn í búrinu

Valdimar & Þorsteinn Einarsson - Ameríka

Sigríður Thorlacius & Valdimar Guðmundsson - Líttu sérhvert sólarlag

Lay Low - Horfið

Lay Low - Brostinn strengur

Lay Low - Vonin

Lay Low - Gleym mér ei

Björk & Ómar Ragnarsson - Þrjú hjól undir bílnum

Björk - Crystalline

Björk - Cosmogony

Björk - Virus

Dönsk - Í nánd

Dönsk - Umboðsmenn drottins

Daníel Ágúst - Yeah Yeah Yeah

Daníel Ágúst - Bingo

Daníel Ágúst - Snowflake

Ingó - Fanney

Ingó & Fjallabræður - Ertu ástfangin

Ingó & Katrína Mogensen - Með þér

Sextett Ólafs Gauks og Björn R. Einarsson - Því ertu svona uppstökk

Jónas Jónasson - Vor í Vaglaskógi

Ríó Tríó - Tár í tómið

Sólstafir - Æra

Sólstafir - Fjara

Sólstafir - Stinningskaldi

Sólstafir - Þín orð

Felix Bergsson - Sem hjörturinn þráir

Felix Bergsson - Vorljóð

Frumflutt

1. júní 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Árið er

Árið er

Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum. Í þáttunum er eitt ár í íslenskri dægurlagtónlistarasögu tekið fyrir í einu frá árinu 1980 til 2020. Umsjónarmenn: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.

Þættir

,