Árið er

Árið er 2013 - fyrsti hluti

Mammút fær andann yfir sig, mamma þarf djamma með Baggalút, Leaves sér okkur í síðbjarmanum og Jón Jónsson skrifar undir samning hjá Epic Records. Emilíana Torrini flytur heim, Of Monsters & Men klárar tveggja ára tónleikaferð, Bubbi Morthens trúir á ljósið, Dr. Gunni tryllir þjóðina með glaðasta hundi í heimi og Eyþór Ingi á líf í Eurovision. Tilbury syngur um íslenska veturinn, Monterey lætur tímann líða, Bloodgroup eltist við bergmál, Markús biðst afsökunar, Geiri Sæm snýr aftur og Fjallabræður & Ragga Gísla syngja um ástina.

Í þáttunum, Árið er.... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum, eru helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu.

Meðal viðmælenda í fyrsta hluta umfjöllunar um íslenska tónlistarárið 2013 eru Katrína Mogensen, Haraldur Leví Gunnarsson, Karl Sigurðsson, Bragi Valdimar Skúlason, Arnar Guðjónsson, Jón Jónsson, Steindór Ingi Snorrason, Pétur Örn Guðmundsson, Ásgeir Sæmundsson, Þormóður Dagsson, Emilíana Torrini, Bubbi Morthens, Gunnar Lárus Hjálmarsson, Friðrik Dór Jónsson, Nanna Bryndís Hilmarsdóttir, Ragnar Þórhallsson og Steindór Ingi Snorrason.

Umsjón: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.

Lagalisti:

Mammút - Blóðberg

Mammút - Til mín

Mammút - Salt

Mammút - Ströndin

Baggalútur - Allt

Baggalútur - Ég fell bara fyrir flugfreyjum

Baggalútur - Mamma þarf djamma

Leaves - Ocean

Leaves - The Sensualist

Jón Jónsson - All, You, I

Jón Jónsson - Feel for you

Markús - É bisst assökunar

Kött Grá Pje og Nolem - Aheybaró

Botnleðja - Slóði

Bloodgroup - Nothing Is Written In The Stars

Unnur Eggertsdóttir - Ég syng!

Eyþór Ingi - Ég á líf

Eyþór Ingi - Ég á líf (Live í Malmö)

Eyþór Ingi & Atómskáldin - Hárin rísa

Helgi Björns - Þetta reddast

Geiri Sæm - Frá toppi oní tær

Tilbury - Turbulance

Tilbury - Northern Comfort

Emilíana Torrini - Speed of Dark

Emilíana Torrini - Tookah

Emilíana Torrini - Animal Games

Emilíana Torrini - Home

Emilíana Torrini - Autumn Sun

Bubbi - Brosandi börn

Bubbi - Allt var það krónunni kenna

Bubbi - Trúðu á ljósið

Dr. Gunni og vinir hans - Brjálað stuðlag

Dr. Gunni & Friðrik Dór - Glaðasti hundur í heimi

Of Monsters & Men - Mountain Sound

Of Monsters & Men - King & Lionheart

Of Monsters & Men - Silhouettes

Of Monsters & Men - Skeletons (Live í Garðabæ)

Óðmenn - Kærleikur

Jóhann G. Jóhannsson - Don’t Try To Fool Me

Bubbi - Augun mín

Hemmi Gunn - Út á gólfið

Sálin hans Jóns míns - Gefðu mér bros

Monterey - Song From The Minor

Monterey - With Your Open Eyes

Ragnhildur Gísladóttir & Fjallabræður - Þetta er ást

Frumflutt

3. júlí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Árið er

Árið er

Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum. Í þáttunum er eitt ár í íslenskri dægurlagtónlistarasögu tekið fyrir í einu frá árinu 1980 til 2020. Umsjónarmenn: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.

Þættir

,