Galdrafár, Reykjanesskaginn, Súdan, netöryggi og Vísindahorn Sævars.
Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir og Rúnar Róbertsson
Um næstu helgi fer fram menningar- og listahátíð með fræði- og listafólki frá fjölmörgum löndum sem ber nafnið Galdrafár á Ströndum og fer fram á Hólmavík. Meginþemað eru galdrar og fornnorræn menning. Hrafnhildur Guðjónsdóttir sagði okkur frá því.
Reykjanesskaginn minnti kurteisislega á sig með örlítilli smáskjálftahrinu um helgina. Eldgosið helst stöðugt og landris einnig. Sem þýðir hvað? Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur var á línunni.
Ár var liðið í gær síðan borgarastyrjöld hófst í Súdan með skelfilegum afleiðingum fyrir börn og fjölskyldur sem neyðst hafa til að flýja heimili sín. Þrátt fyrir mikla neyð eru átökin kölluð gleymda stríðið. Birna Þórarinsdóttir framkvæmdastjóri UNICEF kom til okkar og fór yfir stöðuna.
Anton Már Egilsson forstjóri Syndis kom til okkar að ræða netöryggismál.
Í lok þáttar kom Sævar Helgi Bragason í sitt hálfsmánaðarlega Vísindahorn.