Umræðan um Reykjavíkurflugvöll gýs upp reglulega og hefur gert í áratugi og nú síðast vegna óska Isavia um að borgin veiti leyfi til að fella tæplega 3000 tré í Öskjuhlíðinni. Trén eru farin að hafa áhrif á aðflug að einni brautinni. Skiptar skoðanir eru á því hvort flugvöllurinn eigi að vera þar sem hann er áfram eða hvort hann eigi að víkja. Við ætlum að ræddum flugvöllinn og kennsluflug við Óskar Pétur Sævarsson, forstöðumann Flugakademíu Íslands.
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tilkynnti um fjórtándu hækkun sína í röð á stýrivöxtum í gærmorgun. Nam hækkunin um 0,5 prósentustig og standa meginstýrivextir bankans nú í 9,25 prósentum og hafa ekki verið hærri síðan í desember 2009. Rafiðnaðarsambandið sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem segir meðal annars: Á sama tíma og vextir á almenning og fyrirtæki eru ítrekað hækkaðir, til að skerða lífskjör almennings, eru eigendur fjármagnsins tryggðir á láði og legi. Ekki virðist mega hrófla við því lögmáli að raunvextir fjármagnseigenda séu jákvæðir, sama á hverju dynur. Kristján Þórður Snæbjarnarson formaður Rafiðnaðarsambandsins og þriðji varaforseti ASÍ kom til okkar.
Í gær var fánadagur Úkraínumanna og í dag fagna þeir þjóðhátíðardegi í skugga þeirra hörmunga sem Úkraínumenn hafa þurft að þola af hendi Rússa síðasta eina og hálfa árið. Sveinn Rúnar Sigurðsson í hjálparsamtökunum flottafólk hefur staðið þétt við bak úkraínskra flóttamanna sem hafa komið hingað til lands -hann var á línunni.
Lok ágúst og leikhúsin fara að skríða af stað -nú eða hlaupa af stað, eftir því hvaða verk þú vilt sjá. Leikhúsin lofa fjölbreyttri dagskrá í vetur og þar er Borgarleikhúsið engin undantekning. Brynhildur Guðjónsdóttir Borgaleikhússtjóri komtil okkar í spjall.
Nú fer tímabili bæjarhátíðanna þetta sumarið að ljúka. Þó eru nokkrar eftir og sú síðasta er Ljósanótt í Reykjanesbæ um aðra helgi. En núna um helgina er það til að mynda Suðurnesjabær sem heldur sína hátíð. Suðurnesjabær er heiti á 5 ára gömlum bæ sem varð til við sameiningu Garðs og Sandgerðis. Magnús Stefánsson bæjarstjóri var á línunni hjá okkur.
Lagalisti:
ÁSGEIR TRAUSTI - Leyndarmál.
LAUFEY - Everything I know about love.
HIPSUMHAPS - Góðir hlutir gerast hææægt.
RAGGA GÍSLA & BESTA BAND - Úpsí búpsí.
SILK SONIC - Leave The Door Open.
KHRUANGBIN - Texas Sun (ft. Leon Bridges).
ALANIS MORISSETTE - You oughta know.