Við sjávarsíðuna

Bátasafn Breiðafjarðar

Farið er í litla skemmu við gömlu Áburðarverksmiðjuna í Gufunesi þar sem Bátasafn Breiðafjarðar hefur fengið aðstöðu til halda námskeið í bátasmíði og bátaviðgerðum. Þar er rætt við Hafliða Aðalsteinsson, bátasmíðameistara frá Hvallátrum á Breiðafirði, sem kennir á námskeiðinu. Hafsteinn segir frá bátasmíðahefðinni við Breiðafjörðinn, mikilvægi bátanna sem samgöngutækja í Breiðafjarðareyjum og á bæjum sem áttu land sjó við Breiðafjörð. Rætt er um bátasmíðahefðina, sérvisku mismunandi bátasmiða, mismunandi lag bátanna, smíðaaðferðir og svo auðvitað um varðveislu báta og bátasmíðaiðnarinnar. Bátasafn Breiðafjarðar kemur við sögu, verkefni sem lengi var draumur Aðalsteins Aðalsteinssonar, föður Hafliða, og er komið upp á Reykhólum. Þar eru gamlir bátar varðveittir og fólk sem er í félagsskapnum bak við safnið varðveitir marga báta með lifandi hætti, þ.e. með því nota þá. Hafliði segir frá námskeiðshaldinu og einnig er rætt við Eggert Björnsson, sjómann og áhugamann um bátasmíðar. Eggert hefur lært bátasmíðar nokkru leyti á eigin spýtur og með því taka þátt í félagsskapnum við Bátasafn Breiðafjarðar. Hann er líka frístundamálari og liðtækur við teikna uppdrætti sem notaðir eru við bátasmíðakennsluna. er komin út bráðabirgðaútgáfa kennslubókar í bátasmíði sem notuð verður á námskeiðunum og henni hafa þeir Hafliði og Eggert unnið ásamt fleirum.

Frumflutt

10. mars 2012

Aðgengilegt til

9. okt. 2025
Við sjávarsíðuna

Við sjávarsíðuna

Fólk og menning í strandbyggðum á Íslandi.

Umsjón: Pétur Halldórsson.

Þættir

,