Við sjávarsíðuna

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Rætt er við Pétur Jóhannsson, ritstjóra Sjómannadagsblaðs Snæfellsbæjar, sem komið hefur út frá árinu 1987, fyrst sem sjómannadagsblað Ólafsvíkur en síðan kom sjómannadagsráð Hellissands til liðs við ráðið í Ólafsvík og úr varð sameiginleg blað. Pétur segir frá efnisöfluninni, gildi þess safna heimildum um lífið við sjávarsíðuna, nefnir dæmi um sögur af gleði og sorg sem rekið hefur á fjörur blaðsins og fleira. Því næst segir Konráð Alfreðsson, formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar, frá því hversu stór dagur sjómannadagurinn var í Hrísey þegar hann ólst þar upp, segir frá sjómannsferli sínum, meðal annars vertíðum á Rifi og fjarvistum frá fjölskyldunni en síðan segir Pétur Jóhannsson frá Sjómannagarðinum í Ólafsvík, sem er annar tveggja sjómannagarða á landinu, skrúðgarður og hátíðarsvæði helgað sjómönnum og sögu sjómennsku og sjómannslífs. Pétur er líka formaður sjómannadagsráðs Ólafsvíkur. Hinn sjómannagarðurinn er á Hellissandi og frá honum segir síðar í þessari þáttaröð.

Frumflutt

21. jan. 2012

Aðgengilegt til

21. ágúst 2025
Við sjávarsíðuna

Við sjávarsíðuna

Fólk og menning í strandbyggðum á Íslandi.

Umsjón: Pétur Halldórsson.

Þættir

,