Grunsamleg dauðsföll í Neskaupstað, samgöngusáttmáli, innrás Temu-netverslunarrisans, nethryðjuverk og skógrækt
Lögreglan á Austurlandi býst fastlega við að farið verði fram á gæsluvarðhald yfir manni sem handtekinn var í Reykjavík í dag, vegna hjóna sem fundust látin í Neskaupstað um hádegisbil. Ekki er talið að aðrir tengist málinu.
Bæjarstjóri Kópavogs skilur tortryggni í garð nýs samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, enda hafi vinnubrögð við þann fyrri verið óásættanleg. Hún styður sáttmálann engu að síður, enda hafi hún ekki séð neinn setja fram aðrar og betri lausnir á vandanum sem leysa þarf.
Erlendum póstsendingum Póstsins fjölgaði um 11% í júlí miðað við júlí í fyrra. Forstöðumaður markaðsdeildar Póstsins segir fjölgunina óvenjulega. Áfram er fólk beðið að sýna aðgát í kaupum sínum frá Temu.
Pakistanskur karlmaður hefur verið handtekinn og ákærður fyrir nethryðjuverk. Færsla á vefsíðu hans þar sem hann fór með fleipur um uppruna hnífaárásarmannsins í Southport er talin hafa kynt undir óeirðum öfgahægrimanna í Bretlandi.
Náttúruverndarsamtökin Náttúrugrið hafa kært sveitarstjórn Norðurþings fyrir að veita Yggdrasil Carbon leyfi til skógræktar í landi Saltvíkur og Þverár.