Nýnasistar gera leikhús, innflytjendur með uppistand, ratleikur
Árið 1999 ákvað eitt þekktasta leikskáld heims, svíinn Lars Norén, að búa til leikrit í samstarfi við þrjá fanga sem afplánuðu langa dóma í öryggisfangelsi - þar af tvo nýnasista. Leikritið 7:3 vakti mikla athygli og umtal en ferlið endaði með tveimur morðum. Þessu verkefni eru gerð skil í nýrri leikinni þáttaröð, Sársaukapunktur, Smärtpunk. Við ræðum söguna á bakvið þættina við Hlín agnarsdóttur.
Daniel Roh segir okkur frá uppistandssýningunni Belonging? sem verður haldin í Salnum í Kópavogi næstkomandi föstudagskvöld. Fram munu koma 6 manns sem öll eiga það sameiginlegt að vera erlendis frá en nú búsett hér á landi, sem þekkjast úr alþjóðlegu uppstandssenunni í Reykjavík.
Ratleikur Hafnarfjarðar er hafinn í 27. sinn. Markmið leiks er að leiða þátttakendur vítt og breitt um uppland Hafnarfjarðar til að njóta útivistar og náttúru. Lögð eru 27 merki vítt og breitt um uppland Hafnarfjarðar. Þemað í ár er; þjóðsögur og ævintýri.
Frumflutt
4. sept. 2024
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lestin
Popp og pólitík
Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Kristján Guðjónsson