Litla flugan

Leyft öllum aldurshópum

Danslagatími útvarpsins árið 1962

Litla flugan dregur fram upptökur með hljómsveit Hauks Morthens sem gerðar voru fyrir Danslagatíma útvarpsins árið 1962. Einnig heyrast lög með Sigrúnu Jónsdóttur, Erlu Þorsteinsdóttur, Skapta Ólafssyni, Ingibjörgu Smith, Helenu Eyjólfsdóttur og ítölsku söngkonunni Katynu Ranieri.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 9. mars 2006.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Litla flugan

Í Litlu flugunni er leikin tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,