Litla flugan

Leyft öllum aldurshópum

Evrópsk dægur- og danstónlist

Í þættinum er farið víða um evrópska dægur- og danstónlist. Klaus Wunderlich leikur bossa nova og foxtrott á Hammond-orgel, Franco Scarica leikur á harmonikku og ítalska söngkonan Katyna Ranieri flytur lög sem tengjast meðal annars San Remo-söngvakeppninni. Einnig koma við sögu norrænir Eurovision-flytjendur á borð við Jan Høiland, Arne Bendiksen, Kirsti Sparboe og Monicu Zetterlund.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 29. desember 2005.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Litla flugan

Í Litlu flugunni er leikin tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,