Litla flugan

Leyft öllum aldurshópum

Tangó, suðræn tónlist og djass

Dans- og dægurtónlist frá ýmsum heimshornum er í fyrirrúmi í þættinum. Terry Snyder og The Three Suns flytja tangótónlist, en Don Marino Barreto færir þáttinn í suðrænan takt. Einnig koma við sögu Ragnar Bjarnason, Sigrún Jónsdóttir og KK-sextettinn, auk Alfreðs Clausen og sænska söngvarans Johnny Bode.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 13. október 2005.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Litla flugan

Í Litlu flugunni er leikin tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,