Litla flugan

Leyft öllum aldurshópum

Léttar syrpur og vinsæl danslög

Í þættinum er farið víða um tónlistarheiminn, allt frá rafmagnsorgeli og samkvæmisdansi til íslenskrar dægurtónlistar og kántrís. Sir Julian Gould leikur léttar syrpur á orgel og danshljómsveit Victors Silvester flytur vinsæl danslög. Einnig koma við sögu Haukur Morthens, Les Paul og Mary Ford, Caterina Valente og Elsa Sigfúss, sem syngur á dönsku í upptökum frá 1937.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 2. febrúar 2006

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Litla flugan

Í Litlu flugunni er leikin tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,