Litla flugan tekur á loft
Litla flugan tekur á loft og heldur áfram sínu amstri milli blóma
Það er dagur harmonikkunnar hjá Litlu flugunni að þessu sinni.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 5. janúar 2006

Í Litlu flugunni er leikin tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.
Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.