Litla flugan

Leyft öllum aldurshópum

Frönsk dægurtónlist, djass og íslensk sönglög

Í þættinum blandast saman frönsk dægurtónlist, djass og íslensk sönglög. Charles Trenet, George Shearing-kvintettinn og Bert Kaempfert koma við sögu, auk íslenskra flytjenda á borð við Elly Vilhjálms, Jóhann Möller og Smárakvartettinn í Reykjavík. Meðal íslenskra tónskálda eru Magnús Blöndal Jóhannsson og Sigfús Halldórsson.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 17. nóvember 2005.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Litla flugan

Í Litlu flugunni er leikin tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,