Litla flugan

Leyft öllum aldurshópum

Íslensk dægur- og danstónlist

Í þættinum er leikin fjölbreytt íslensk dægur- og danstónlist. Meðal annars heyrast lög Jóns Múla og Jónasar Árnasona í flutningi Steindórs Hjörleifssonar, Kristínar Önnu Þórarinsdóttur, Ragnars Bjarnasonar og Ellyjar Vilhjálms. Einnig koma við sögu Helena Eyjólfsdóttir, söngkonan Kim Bond og harmonikkuleikararnir Grettir Björnsson og Reynir Jónasson, ásamt hljómsveitum Magnúsar Ingimarssonar og Ólafs Gauks.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 11. maí 2006.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Litla flugan

Í Litlu flugunni er leikin tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,