Litla flugan

Leyft öllum aldurshópum

Hljómsveitin Pónik

Í þættinum er hljómsveitin Pónik í aðalhlutverki ásamt söngvurunum Einari Júlíussyni og Þorvaldi Halldórssyni. Rifjaðar eru upp fyrstu hljómplötur sveitarinnar frá Bítlaárunum, meðal annars lög eftir Magnús Eiríksson, auk vinsælla laga frá áttunda áratugnum. Einnig eru leiknar upptökur úr páskadagskrá Ríkisútvarpsins frá 1975, þar sem Pónik og Einar flytja erlend popp- og rokklög og eitt þeirra með íslenskum texta.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 6. apríl 2006.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Litla flugan

Í Litlu flugunni er leikin tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,