Litla flugan

Leyft öllum aldurshópum

Bandaríski harmonikkuleikarinn Viktor Jackovich

Harmonikkutónlist, djass og íslensk dægurtónlist eru í fyrirrúmi í þættinum. Bandaríski harmonikkuleikarinn Viktor Jackovich leikur meðal annars íslensk og erlend lög úr upptökum Ríkisútvarpsins frá 1974, auk þess sem Art van Damme og Fjórtán fóstbræður koma við sögu. Einnig heyrast hljómsveit Magnúsar Péturssonar, básúnuleikarinn Tyree Glenn og tónlist eftir George Gershwin og Cole Porter.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 2. mars 2006.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Litla flugan

Í Litlu flugunni er leikin tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,