Litla flugan

Leyft öllum aldurshópum

Íslenskt ball

Slegið er upp íslensku balli með hljómsveitum Ásgeirs Sverrissonar og Ingimars Eydal. Hljómsveit Ásgeirs flytur dans- og dægurlög með söngvurunum Siggu Maggý og Gunnari Páli. Síðari hluti þáttarins er helgaður hljómsveit Ingimars Eydal og söngvurum á borð við Þorvald Halldórsson, Helenu Eyjólfsdóttur og Vilhjálm Vilhjálmsson.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 30. mars 2006.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Litla flugan

Í Litlu flugunni er leikin tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,