Litla flugan

Leyft öllum aldurshópum

Harmonikkutónlist

Harmonikkutónlist er í aðalhlutverki í þættinum og meðal flytjenda eru Veikko Ahvenainen, Jo Basile og Erik Frank. Einnig er leikin íslensk dægur- og danstónlist með Hauki Morthens, Alfreð Clausen og hljómsveit Bjarna Böðvarssonar. Að lokum koma harmonikkuleikararnir Bragi Hlíðberg og Grettir Björnsson við sögu.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 27. apríl 2006.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Litla flugan

Í Litlu flugunni er leikin tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,