Litla flugan

Leyft öllum aldurshópum

Gamanmál og eftirhermur úr skemmtiþáttum útvarpsins

Í þættinum er rifjuð upp íslensk dægur- og söngtónlist frá ýmsum tímum. Meðal annars heyrast gamlar upptökur með Hreini Pálssyni og Guðmundi Jónssyni, auk efnis úr safni Ríkisútvarpsins með Hauki Morthens og Ragnari Bjarnasyni. Einnig koma við sögu gamanmál og eftirhermur úr skemmtiþáttum útvarpsins frá áttunda áratugnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 18. maí 2006.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Litla flugan

Í Litlu flugunni er leikin tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,