Litla flugan

Leyft öllum aldurshópum

Ítölsk, íslensk og bandarísk dægur- og danstónlist

Í þættinum er ferðast um ítalska, íslenska og bandaríska dægur- og danstónlist. Meðal flytjenda eru The Gaylords, Erla Þorsteinsdóttir og harmonikkuleikararnir Dick Contino og John Molinari. Einnig koma við sögu Terry Snyder og hljómsveit hans, auk Frank Petty-tríósins með lögum eftir meðal annars Cole Porter og George Gershwin.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 27. október 2005.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Litla flugan

Í Litlu flugunni er leikin tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,