Litla flugan

Leyft öllum aldurshópum

Bossa nova

Bossa nova er í aðalhlutverki í þættinum, með tónlist frá Brasilíu sem sló í gegn um heim allan í upphafi sjöunda áratugarins. Meðal flytjenda eru João Gilberto, Astrud Gilberto, Stan Getz og Charlie Byrd, auk tónlistar eftir Antônio Carlos Jobim og Luiz Bonfá. Einnig heyrast Elizeth Cardoso, Elly Vilhjálms og Oscar Peterson.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 23. mars 2006.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Litla flugan

Í Litlu flugunni er leikin tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,