Litla flugan

Leyft öllum aldurshópum

Finnsk danslög

Dans- og harmonikkutónlist er í fyrirrúmi í þættinum. Finnski söngvarinn Olavi Virta kemur við sögu ásamt harmonikkuleikurunum Aaro Kurkela, Erkki Friman, Gretti Björnssyni og Jan Morávek. Einnig heyrast íslensk danslög með Skapta Ólafssyni og Ingibjörgu Þorbergs, auk suðrænna takta með Pepe Jaramillo.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 20. október 2005.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Litla flugan

Í Litlu flugunni er leikin tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,