Litla flugan

Leyft öllum aldurshópum

Polki og dans- og sjómannalög

Í þættinum er rifjuð upp íslensk og norræn dans- og dægurtónlist. Hljómsveit Ásgeirs Sverrissonar leikur polka með Siggu Maggý og hljómsveit Jóhannesar Eggertssonar flytur eldri dans- og sjómannalög með Grétari Guðmundssyni. Einnig koma við sögu danskir flytjendur á borð við Ove Sopp og Gustav Winckler, auk Elsu Sigfúss, Sigurðar Ólafssonar og Ragnars Bjarnasonar.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 24. nóvember 2005.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Litla flugan

Í Litlu flugunni er leikin tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,