Litla flugan

Leyft öllum aldurshópum

Hljómsveit Björns R. Einarssonar og fleiri

Í þættinum er rifjuð upp íslensk dægur- og danstónlist frá miðri 20. öld. Meðal flytjenda eru Haukur Morthens, Sigrún Jónsdóttir, Alfreð Clausen, Ragnar Bjarnason, Steinunn Bjarnadóttir og Hallbjörg Bjarnadóttir, auk KK-sextettsins og Öskubusku. Einnig koma við sögu hljómsveitir Björns R. Einarssonar og Ólafs Gauks og harmonikkuleikarinn Jan Morávek.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 4. maí 2006.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Litla flugan

Í Litlu flugunni er leikin tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,