Litla flugan

Leyft öllum aldurshópum

Djass, harmonikku- og íslensk danstónlist

Djass, harmonikku- og íslensk danstónlist eru í fyrirrúmi í þættinum. Art van Damme-kvintettinn og hljómsveit Björns R. Einarssonar leika djass, en Haukur Morthens syngur íslensk dægurlög. Einnig koma við sögu hljómsveit Magnúsar Péturssonar með cha-cha-cha og stjörnusveit slagverksleikarans Terry Snyder.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 6. október 2005.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Litla flugan

Í Litlu flugunni er leikin tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,