Litla flugan

Leyft öllum aldurshópum

Slow foxtrot, cha-cha-cha, bossa nova og rúmba

Dans- og dægurtónlist er í fyrirrúmi í þættinum. Danshljómsveit Victors Silvester leikur meðal annars slow foxtrot, cha-cha-cha, bossa nova og rúmbu, en einnig koma við sögu söngkonurnar Nora Brockstedt og Caterina Valente. Að lokum flytja Fjórtán fóstbræður rúmbusyrpu með hljómsveit Svavars Gests.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 9. febrúar 2006.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Litla flugan

Í Litlu flugunni er leikin tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,