• 00:02:45Í tíma og ótíma í Hafnarborg
  • 00:14:22Hildigunnur Sverrisdóttir: Híbýlaauður
  • 00:26:35Óperan Hundrað þúsund

Víðsjá

Hundrað þúsund, Í tíma og ótíma og Híbýlaauður

Óperan Hundrað þúsund var frumsýnd í Þjóðleikhúsinu um liðna helgi. Verkið, sem þær Kristín Eiríksdóttir og Þórunn Gréta Sigurðardóttir byggja á gamla Grimmsævintýrinu um spunakonurnar, fjallar um ástandið í samtíma okkar og misskiptinguna sem það ástand skapar. Neyslukapphlaup, stéttaskiptingu og viðhorf til vinnu. Við ræðum við leikstjórann Salvöru Gullbrá Þórarinsdóttur og tónskáldið Þórunni Grétu í þætti dagsins.

Við lítum einnig við inn í Hafnarborg þar sem sýningin Í tíma og ótíma opnar um næstu helgi. Þar er sjónum beint margvíslegum birtingarmyndum tímans í verkum ‏þ‏‏riggja alþjóðlegra samtímalistakvenna, þeim Örnu Óttarsdóttur, Leslie Roberts og Amy Brener. Við ræðum við sýningarstjórann Ingunni Fjólu Ingþórsdóttur í þættinum.

Hildigunnur Sverrisdóttir veltir fyrir sér arkitektónískum og hagrænum rannsóknum á húsnæðisuppbyggingu hér á landi.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Frumflutt

7. maí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,