• 00:00:17Kammerkór Norðurlands
  • 00:19:03Konur kenndar við súrrealisma
  • 00:31:46Gjörningaklúbbur og Skilaboð að handan

Víðsjá

Skilaboð að handan, Kammerkór Norðurlands, súrrealistar

Mikilvæg skilaboð handan eru hvatinn baki nýrri sýningu GJörningaklúbbsins sem opnar dyr sínar í Gallerí Porti um helgina. Þær Eirún Sigurðardóttir og Jóní Jónsdóttir, sem hafa starfað saman í rúma tvo áratugi listinni, hafa í auknum mæli nýtt sér sjáendur við upphaf sköpunarferlis, aðferð sem þær kalla miðil-miðil.

Sýningin í Gallerí Porti mun hverfast um miðilsfund sem átti sér stað í húsi við Bergstaðarstræti 2019, í húsi Ásgríms Jónssonar listmálara. Á fundinum náðist samband við Ásgrím sem vildi koma mikilvægum skilabopðum á framfæri. Þær Eirún og Jóní hafa hingað til ekki opinberað miðilsfundina sjálfa en í þessu tilfelli vilja þær gefa fólki kost á komast í þessa frumheimild. Við heyrum upptökur af miðilsfundinum og ræðum við listakonurnar í þætti dagsins.

Kammerkór Norðurlands er á faraldsfæti þessa dagana, kórinn hefur starfað í yfir 20 ár og hefur frá stofnun haft markmiði flytja nýja íslenska kórtónlist, samhliða ýmsum öðrum verkefnnum og gefið út þrjá hljómdiska, síðast árið 2020, en þar er finna ljóð Davíðs Stefánssonar við og eldri íslensk lög. beinir kórinn sjónum sínum til Bandaríkjanna og flytur nokkur af nýrri kórverkum höfuðtónskálda Bandaríkjanna í bland við dægurlög í kórútsetningum. Meðlimir kórsins eru flestir tónlistarmenntaðir og/eða atvinnufólk í tónlist sem koma víða af Norðurlandi, búsettir allt frá Kópaskeri Hrútafirði og kórstjórinn, Við ræðum við Guðmund Óla Gunnarsson í þætti dagsins.

Og gefnu tilefni rifjum við upp umfjöllun um konur sem tengdust hreyfingu súrrealista á fyrri hluta síðustu aldar.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir

Frumflutt

2. mars 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,