• 00:02:05Snuð: Rýni
  • 00:09:08Verkafall í Mesópótamíu: pistill
  • 00:19:32Litáharnir við Laptevhaf

Víðsjá

Litháarnir við Leptevhaf, Snuð, verkföll í Mesópótamíu

Hin fjórtán ára gamla Dalia Grinkevitjúte var á meðal þeirra þúsunda íbúa Eystrasaltsríkjanna sem sovésk yfirvöld fluttu nauðuga til Síberíu í þrælkunarvinnu þann 14. júní árið 1941. Bókin "Litháarnir við Laptevhaf" hefur geyma minningar hennar frá fyrstu árum útlegðarinnar og eru vitnisburður um það helvíti á jörðu sem sovésktu þrælkunarbúðirnar voru, og það hvernig fólk nær viðhalda mennsku sinni á slíkum stað. Vilma Kinderyté og Geir Sigurðsson þýddu verkið úr litháísku. Við kynnum okkur sögu Daliu með Geir í þætti dagsins og heyrum lestur úr bókinni.

Og við fáum heyra fyrsta pistil af fjórum frá Ragnheiði Gyðu Jónsdóttur um vinnudeilur og verkföll. Þó ekki þau sem hæst ber um þessar mundir hér á landi, og reyndar víðar, heldur misforn. Í fyrsta pistli hennar liggur leiðin til Mesópótamíu.

Við hefjum þáttinn á rýni Gauta Kristmannssonar í skáldsöguna Snuð eftir Brynjólf Þorsteinsson.

Umsjón: Halla Harðardóttir

Frumflutt

30. jan. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,