• 00:02:02Bögglapóststofan
  • 00:20:55Lydia Davis rýni
  • 00:27:10Paul Lydon

Víðsjá

Paul Lydon Umvafin loforðum, Mér líður ágætlega en gæti liðið betur, Bögglapóststofan

Tónlistarmaðurinn Paul Lydon var gefa út plötuna Umvafin loforðum og heldur tónleika í Mengi í næstu viku. Paul hefur spilað á píanó síðan hann var unglingur í Boston en hann fluttist hingað til lands fyrir 30 árum síðan, nánast fyrir tilviljun. Paul, sem einnig þýðir ljóð úr persnesku, er heillaður af íranskri tónlist og þau áhrif, auk írskra róta hans, segir hann vera undirliggjandi í tónsmíðunum. Við ræðum við Paul í þætti dagsins.

Einnig verður rætt við Braga Ólafsson um bók sem hann gaf út 2014 í samstarfi við leigufélagið Gamma, og sem var aðeins dreift til starfsmanna og viðskiptavina þess.

Og Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í smásagnasafn Lydiu Davis, Mér líður ágætlega en mér gæti liðið betur sem kom út í íslenskri þýðingu Berglindar Ernu Tryggvadóttur í vetur.

Frumflutt

13. feb. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,