• 00:02:02Breytingar í Smithsonian
  • 00:14:21Draumþjófurinn: Rýni
  • 00:23:49Rúnar Gunnarsson ljósmyndari

Víðsjá

Ljósmyndir Rúnars Gunnarssonar, Draumaþjófurinn, Smithsonian

Rúnar Gunnarsson ljósmyndari er fæddur árið 1944. Hann fékk sína fyrstu myndavél árið 1957 og fór þá beinustu leið út mynda og hefur verið mynda síðan. Ljósmyndasýnin á verkum Rúnars opnaði dyr sínar í myndasal Þjóðminjasafns Íslands síðastliðinn laugardag og kallast sýningin Ekki augnablikið heldur eilífðin

Rúnar segir drifkraftinn á bak við ævistarfið vera þörfina fyrir fanga andblæ tímans, eilífðina og mögulega einhvern sannleika, og á sama tíma hafi hann reynt forðast fegurðina eins og heitan eldinn. Við heyrum meira af því þegar við skoðum ljósmyndirnar með Rúnari í þætti dagsins.

Nýtt íslenskt leikhúsverk var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu þann 5.mars síðastliðinn, Draumaþjófurinn. Þetta er fjölskyldusöngleikur eftir Björk Jakobsdóttur sem byggir á bók Gunnars Helgasonar, en Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson semur tónlistina. Eva Halldóra Guðmundsdóttir rýnir í verkið.

En við hefjum þáttinn á fréttum frá Bandaríkjunum, á stækkunar hugmyndum um eina mestu menningarstofnun þess stóra lands, Smithsonian safnsins.

Frumflutt

14. mars 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,