• 00:01:57Ex: rýni
  • 00:13:10Hönnunarsafnið sem heimili
  • 00:32:14Öld vatnsberans

Víðsjá

Hönnun og heimilið, Ex, og Öld vatnsberans

Við hefjum þáttinn á rýni Evu Halldóru Guðmundsdóttur í leikverkið Ex, sem frumsýnt var í Þjóðleikhúsinu síðastliðna helgi.

Heimili segja margt um ábúendur, og uppröðun og munir innan heimila geta sagt margt um tíðarandann. Til mynda erum við hætt kalla vinnuherbergi húsbóndaherbergi og eldhúsið, sem áður var vinnuherbergi húsfrúnnar, hefur i nútímasamfélagi öðlast sess sem samverustaður fyrir alla fjölskylduna. Á morgun opnar sýning í Hönnunarsafni Íslands sem kallast Hönnunarsafnið sem heimili, þar sem verða til sýnis um 200 ólíkir munir sem tengjast heimilinu. Við lítum inn á safnið í þætti dagsins og ræðum við einn af sýningarstjórunum, Sigríði Sigurjónsdóttur, forstöðumann safnsins.

Samkvæmt stjörnuspekingum hefur gengið í garð öld vatnsberans, sem á einkennast af mikilli endurskipulagningu á heimsmynd mannanna, fyrst með niðurbroti og svo með enduruppbyggingu, en einnig af vaxandi víðsýni mannshugans. Af því tilefni heldur kammerhópurinn Cauda Collective tónleika í Norðurljósasal Hörpu um helgina, og flytur þar þrjú tónverk sem öll tengjast stjörnumerkjum. Við fáum tvo meðlimi hópsins, þær Þórdísi Gerði Jónsdóttur og Þóru Margréti Sveinsdóttur, til þess segja okkur nánar af þessu dularfulla verkefni í lok þáttar.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Frumflutt

2. feb. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,