Víðsjá

Parísardepurð, Zamrokk og fuglar

Á dögunum kom út bókin Parísardepurð; stutt ljóð í lausu máli eftir Charles Baudelaire í fyrsta sinn í íslenskri þýðingu. Þýðandi er Ásdís Rósa Magnúsdóttir Prófessor í frönsku máli og bókmenntum en ritstjóri er Kristín Guðrún Jónsdóttir og er bókin hluti af ritröð þýðinga sem Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur stendur fyrir. Við ræðu við Ásdísi Rósu um bókina í þættinum.

Þorleifur Sigurlásson, tónlistarmaður, hefur verið skoða tónlistarstefnur í ólíkum heimshornum sem eiga það sameiginlegt hafa haft gríðarleg menningarleg áhrif, bæði á stöðum sem þær spretta fram sem og annarsstaðar í heiminum. þessu sinni ferðast hann til Zambíu ársins 1964.

Við höldum áfram rifja upp umfjallanir Jóhannesar Ólafssonar um fugla frá árinu 2018. þessu sinni sest hann niður með Ragnari Helga Ólafssyni, rithöfundi og skáldi og ræðir við hann, meðal annars, um fugla-athuganir í Flatey.

Frumflutt

23. apríl 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,