Víðsjá

Ólöf Arnalds, áhrif stríðs á menningu, verkföll í Róm

Ólöf Arnalds vinnur gerð nýrrar plötu þessi dægrin, og er komin vel á veg með hana. Þetta verður fimmta plata Ólafar og mun hún hljóta titillinn Tár í morgunsárið. Síðustu tvær plötur Ólafar, síðasta kom út fyrir nær áratug, voru sungnar á ensku en nú, líkt og á hennar fyrstu plötum, syngur hún á íslensku og röddin verður í aðalhlutverki, ásamt gítar. Ólöf er komin vel á veg með plötuna en stendur yfir söfnun á Karolina fund til klára hana, og hún verður með tónleika í vikunni. Meira um það í samtali við Ólöfu í þætti dagsins.

Við ræðum einnig við Sigrúnu Ölbu Sigurðardóttur stundakennara við Háskóla Íslands. Hún tekur þátt í málþingi sem fram fer á morgun í Veröld, húsi Vigdísar Finnbogadóttur vestur á svæði Háskóla Íslands. Yfirskriftin er Tráma - áhrif stríðs á menningu og samfélag en málþingið er haldið á vegum svokallaðs Úkraínuverkefnis Háskóla Íslands. Sigrún segir okkur frá sögulegu rofi og úrvinnslu trámatískrar reynslu í listum og menningu.

Ragnheiður Gyða Jónsdóttir heldur áfram fjalla um forn verkföll í þætti dagsins. Í dag er hún með hugann við borgina eilífu Róm og fornar verkalýðs deilur þar fyrir margt löngu.

En við byrjum á rödd úr safni Ríkisútvarpsins, mikilvægri rödd í íslensku tónlistarlífi sem er fallin frá.

Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir

Frumflutt

13. feb. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,