• 00:04:04Eden: Rýni
  • 00:17:26Svipmynd: Arndís Þórarinsdóttir

Víðsjá

Svipmynd af Arndísi Þórarinsdóttur, viðurkenningar Hagþenkis, Eden

Arndís Þórarinsdóttir hlaut nýverið Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki barna- og ungmennabóka fyrir skáldsöguna Kollhnís. Arndís sendi frá sér sína fyrstu bók, Játningar mjólkurfernuskálds, árið 2011, og síðan eru bækurnar orðnar 12 talsins, auk fjölmargra þýðinga. Arndís hefur hlotið margvísleg verðlaun og tilnefningar fyrir bækur sínar og Blokkin á heimsenda hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin 2020 í flokki barna- og ungmennabóka, auk Barnabókaverðlauna Guðrúnar Helgadóttir. Arndís lærði bókmenntafræði, leikritun og ritlist og starfaði sem blaðamaður og bókasafnsvörður áður en hún helgaði líf sitt ritstörfum. Hún verður gestur í Svipmynd dagsins.

Við fáum líka bókarýni frá Sölva Halldórssyni, sem fjallar þessu sinni um skáldsögu Auðar Övu Ólafsdóttur, Eden.

En við byrjum þáttinn í dag á því fara yfir tilnefningar til Viðurkenningar Hagþenkis. Hagþenkir hefur frá árinu 1986 veitt viðurkenningu fyrir fræðirit, námsgögn eða aðra miðlun fræðilegs efnis til almennings.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Frumflutt

8. feb. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,