Víðsjá

Verðlaun fyrir Sjón, forn verkföll og Konstrúktívur vandalismi

Víðsjá dagsins hefst á gleðitíðindum úr bókmenntalífinu. Tilkynnt var um það í hádeginu rithöfundurinn og skáldið, handrits- og textahöfundurinn Sjón, Sigurjón Birgir Sigurðsson fái árið 2023 hin svokölluðu Norrænu verðlaun Sænsku Akademíunnar fyrir framlag sitt til fjölbreyttra bókmennta og texta ýmis konar. Við skjótumst í heimsókn og hittum höfundinn þessu tilefni.

Ragnheiður Gyða Jónsdóttir heldur áfram rekja sig í gegnum forn verkföll. Ragnheiður Gyða er með hugann við Grikkland, þá miklu lýðræðis og menningarvöggu vesturlanda. Kvennaverkfall úr leiklistarsögunni verður tekið fyrir.

Við höldum líka í Hverfisgallerí og spjöllum við Daníel Magnússon myndlistarmann sem þar býður upp á Konstrúktívan vandalisma, eða það er a.m.k. heitið á einkasýningunni hans þar á bæ. Daníel er í verkunum velta fyrir sér horfinni heimsmynd, þeim tíma þegar jörðin var álitin í miðju sólkerfisins okkar áður en annað kom í ljós. Listin er einræði segir Daníel, við heyrum nánar af því hér í síðari hluta Víðsjár í dag. Við sögu koma út- og innhöf, myndgert blátt hljóð, hárspennur og heiti á klámstjörnum, gömlum og nýjum.

Frumflutt

20. feb. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,