• 00:01:32Tónlistarmiðstöð: Bryndís Jónatansdóttir
  • 00:19:58Litháarnir við Laptevhaf: rýni
  • 00:32:08Andardráttur á glugga: Sigga Björg

Víðsjá

Andardráttur á glugga, tónlistarmiðstöð, Litháarnir við Laptevhaf

Listasafn Reykjavikur heldur áfram kynna verk starfandi listamanna í Ásmundarsafni, þar sem þau kallast á við myndheim Ásmundar Sveinssonar. er það myndlistarkonan Sigga Björg sem á í samtali við Ásmund, og áherslan í þetta sinn er á þjóðsögur, ævintýri og ímyndunarafl. Á sýningunni Andardráttur á glugga sýnir Sigga BJörg teikningar, veggverk og vidjóverk. Meira um það hér undir lok þáttar, þegar við hittum Siggu Björg í Ásmundarsafni.

Gauti Kristmannsson heldur áfram fjalla um nýútkomnar bækur, og þessu sinni er það þýðing á litháískri bók: Litháarnir við Laptevhaf, eftir Daliu Grinkevitjúte, í þýðingu Geirs Sigurðssonar og Vilmu Kinderyté.

En við hefjum þáttinn á heimsókn í eitt af ráðuneytum borgarinnar. Fram eru komin á hinu háa alþingi íslendinga tvö mál er varða umhverfi tónlistarsköpunar í Íslandi: frumvarp til tónlistarlaga og þingsályktunartillaga um tónlistarstefnu fyrir árin 2023 til 2030. Og eitt því sem ráðgert í þessum plöggum er stofnun nýrrar tónlistarmiðstöðvar. Við ræðum við Bryndísi Jónatansdóttur um framtíðarsýn þegar kemur umgjörð um íslenska tónlist.

Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir

Frumflutt

21. feb. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,