• 00:02:32Hulið: Rýni
  • 00:12:10Best fyrir
  • 00:24:01Freyja Þórsdóttir: pistill
  • 00:35:23Flokkstjórinn

Víðsjá

Flokkstjórinn, sannleikurinn í samskiptum, Hulið og Best fyrir

Hólmfríður Hafliðadóttir vann í unglingavinnunni og elskaði vinnuna sína, allt þar til hún breyttist í martröð. Hún starfaði eins og flestir unglingar við almenn garðyrkjustörf og vann sig svo upp í flokkstjórastöðu sem hún gegndi í tvö ár. Með tímanum fór hún upplifa eitraða stemningu, þar sem meðal annars jaðarsettir hópar voru niðurlægðir og hún sjálf lögð í einelti. Komandi úr réttrúnaðarumhverfi framsækinna og fjölmenningarsinnaðra menntskælinga, eins og hún segir sjálf frá, kom henni gjörsamlega í opna skjöldu vera skyndilega föst í ómenningu einstaklinga sem virtust ekki þurfa bera nokkra ábyrgð á hegðun sinni. Hólmfríður er í dag sviðshöfundur og leiklistarnemi sem hefur samið ásamt félaga sínum, sviðshöfundinum Magnúsi Thorlacius, einleik sem byggir á þessari reynslu, sem sýndur verður í útileikhúsi í Kópavogi.

Framtíðin er ekki óskrifað blað segir aftan á kápu sannsagnasafnsins Best fyrir sem kom út í lok maí. Þar ferðast 7 höfundar, allt nemar í ritlist, um tímann í gegnum heimaslátrun, átök við íslenska veðrið, skíðakennslu á Ítalíu, ómögulegar ástir, eftirpartí, undarlegt háttalag konu um nótt og súran kvíða samtímans. Hvenær kemur framtíðin? Hvenær er hún horfin og orðin fortíð, útrunninn eins og mjólk í tetra pak fernu á leið í brennslu. Oft góð lengur. Við heyrum lestur úr bókinni í þættinum.

Freyja Þórsdóttir verður vanda í sínu heimspekilega landslagi í pistli dagsins. Freyja fjallar í dag um gildi sannleikans í mannlegum samskiptum og hvernig það nota tungumálið til bæði rýra og auðga tengsl.

Leikverkið Hulið eftir Sigríði Ástu Olgeirsdóttur var frumsýnt um liðna helgi í Tjarnarbíói. Eva Halldóra Guðmundsdóttir sviðslistarrýnir segir frá sinni upplifun af uppfærslunni.

Frumflutt

6. júní 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,