• 00:02:12Borgar Magnason um Come closer
  • 00:23:14Sigga Soffía um Til hamingju með að vera mannleg

Víðsjá

Til hamingju með að vera mannleg, Come closer

Sigríður Soffía Níelsdóttir, eða Sigga Soffía, er danshöfundur og dansari sem hefur unnið fjölbreyttum verkefnum frá því hún útskrifaðist sem dansari frá Listaháskóla Íslands 2009. Hún frumsýnir nýtt leikverk í Þjóðleikhúsinu þann 19.apríl, verkið kallast Til hamingju með vera mannleg og er unnið upp úr samnefndri ljóðabók. Bókina skrifaði Sigga Soffía þegar hún gekk í gegnum krabbameinsmeðferð, sem leið til takast á við óttann sem fylgdi óvissunni. Hún segir bókina meðal annars vera vitnisburð manneskju sem tekst á við áfall, sjálfstætt starfandi móður sem þarf horfast í augu við nýja sjálfsmynd í kapítalísku samfélagi þar sem framleiðni virðist oft skipta meira máli en manneskjur. Við ræðum við Siggu Soffíu í þætti dagsins og heyrum nokkur ljóð úr bókinni Til hamingju með vera mannleg.

Einnig verður rætt við Borgar Magnason kontrabassaleikara um nýútkomna sólóplötu hans, Come closer.

Frumflutt

12. apríl 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,