• 00:02:10National Book Award
  • 00:09:59Hlaupavargur - Kerstin Ekman
  • 00:27:01Ég er það sem ég sef - Svikaskáld

Bara bækur

National Book Award, Hlaupavargur og Ég er það sem ég sef

Hlaupavargur eftir einn stærsta samtímahöfund svía, Kerstin Ekmann, kom út í svíþjóð 2022 og hlaut fyrir tilnefningu til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, sem styttist óðfluga í verði veitt. Ekman sem er komin á tíræðisaldur kom mörgum á óvart með bókinni, hún hafði ekki gefið út skáldsögu í rúman áratug. Hlaupavargur er athyglisverð saga um samband manns við tímann og umhverfi sitt, annað fólk og sjálfan sig. Við ræðum við Skúla Thoroddsen þýðanda í þættinum og heyrum brot úr bókinni.

Ljóðakollektívan Svikaskáld var gefa út nýtt ljóðverk, Ég er það sem ég sef. Það er fjórða ljóðbók hópsins á sjö árum sem hefur líka gefið út skáldsöguna Olíu 2021. Við förum á fund svið Svikaskáld í Gröndalshúsi í lok þáttar og ræðum um samvinnuljóðagerð, endurnýjun og listina láta sér leiðast.

En við byrjum í Bandaríkjunum og rennum yfir nokkrar áhugaverðar bækur á stuttlista National book awards.

Viðmælendur: Skúli Thoroddsen, Svikaskáld #3 og Svikaskáld #4

Lesari: Þorgeir Ólafsson

Umsjón: Jóhannes Ólafsson

Frumflutt

5. okt. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Bara bækur

Bara bækur

Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.

Umsjón: Jóhannes Ólafsson.

Þættir

,