Bara bækur

Lykt af gömlum bókum, Claire Keegan og rauðar heimsbókmenntir

Ilmhúsið Fischersund og myndlistarmaðurinn Jón Albert báru saman bækur sínar á Hönnunarmars í nýju verkefni. Þar veltir Jón fyrir sér bókunum sem hlut, bókum sem minningum og í samstarfi hans við Fischersund fanga þau lykt af gömlum bókum.

Við flettum líka í nýrri þýðingu Helgu Soffíu Einarsdóttur á Fóstri eftir írska rithöfundinn Claire Keegan. Og í lokin fáum við Benedikt Hjartarson í heimsókn til okkar. Hann hefur verið velta fyrir sér Rauðum heimsbókmenntum síðustu misseri og segir frá þeim og gróskumikilli útgáfu þýðinga á millistríðsárunum á Íslandi.

Viðmælendur: Benedikt Hjartarson, Helga Soffía Einarsdóttir, Ingibjörg Birgisdóttir, Jón Albert Guðrúnar-Carlosson.

Umsjón: Jóhannes Ólafsson.

Frumflutt

27. apríl 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Bara bækur

Bara bækur

Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.

Umsjón: Jóhannes Ólafsson.

Þættir

,