Bara bækur

Samantekt: Bókmenntir á samfélagsmiðlum og Bókasóun

Í þessum þætti lítum við aðeins yfir farinn veg og fjöllum um lestur og bækur almennt. Tökum stöðuna, á áramótum. Við rifjum upp umfjallanir úr þáttum ársins þar sem sagt var frá lestri yngri kynslóðanna og bókaáhrifavöldum á samfélagsmiðlum. Eru þetta einfaldlega tískutrend eða almennilegar umræður um bókmenntir? Eru þetta bækur sem stóru útgefendurnir í Ameríku eru ýta fólki eða eitthvað sem fólk grefur örlítið meira til finna.

Á fyrrihluta ársins grúskuðum við í Góða hirðinum og kynntumst hugtakinu bókasóun. Nytjamarkaðir eru fyllast af gömlum bókum því fólk grysjar bókahillurnar heima, vill ekki bækur eða það er bara nóg um og heilu dánarbúin enda stundum á haugunum. Og hvað svo? Inn á milli geta leynst faldar perlur í hillunum ef enginn fer í gegnum þetta, áritaðar, fágætar eða merkilegar útgáfur sem fara í urðun. Það þarf ráða bókmenntafræðinga á Sorpu sagði Fríða Þorkelsdóttir bókmenntafræðingur og safnari sem komst í fréttir þegar hún keypti ljóðabók á klink í hirðinum sem hefði undir venjulegum kringumstæðum átt kosta tugi þúsunda.

Umsjón: Jóhannes Ólafsson

Frumflutt

28. des. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Bara bækur

Bara bækur

Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.

Umsjón: Jóhannes Ólafsson.

Þættir

,