Bara bækur

Mannát í menningunni

Undanfarin misseri hefur þó nokkuð borið mannáti sem viðfangsefni í skáldskap og menningarefni. Í jólabókaflóðinu hér á landi 2023 voru t.a.m. fjórar bækur sem fjölluðu um mannát, þessa helstu og hrikalegustu bannhelgi mannsins sem hefur fylgt okkur öldum og árþúsundum saman. Í þessum þætti veltum við fyrir okkur hvers vegna sögur af mannáti rata reglulega inn í menninguna, á ólíkum tímum. Tekið skal fram í þessum þætti verður fjallað um mannát og ofbeldi og birtingarmyndir þess í menningarefni, aðallega bókmenntum. Rétt er vara viðkvæma við hlusta.

Viðmælendur: Áslaug Áslaug Ólafsdóttir, Bragi Páll Sigurðarson, Magnús Jochum Pálsson, Guðrún Steinþórsdóttir.

Umsjón: Jóhannes Ólafsson.

Frumflutt

13. apríl 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Bara bækur

Bara bækur

Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.

Umsjón: Jóhannes Ólafsson.

Þættir

,