Bara bækur

Samantekt: Afskriftir, Kaveh Akbar, Fóstur og Frie Folk

Það verða valin brot úr athyglisverðum viðtölum vetrarins. Við rifjum upp vettvangsferð á bókasafnið þar sem við kynnum okkur líftíma bóka og afskriftir. Erlend samtímaljóð verða líka á dagskrá: Íransk ameríska ljóðskáldið Kaveh Akbar var staddur hér á landi síðasta haust. Hann leit við í Efstaleitinu og við ræddum lífið og listina. Þýðingar verða líka í brennidepli undir lokin, annars vegar þýðing Helgu soffíu einarsdóttur á skáldsögunni Fóstur eftir Claire Keegan og dönsk þýðing á Halldóri Laxness eftir Nönnu Kalkar.

Umsjón: Jóhannes Ólafsson.

Frumflutt

30. júní 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Bara bækur

Bara bækur

Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.

Umsjón: Jóhannes Ólafsson.

Þættir

,